Við viljum blómlegt
atvinnulíf í Hafnarfirði
-
Markaðsstofan eflir samstarf atvinnulífs, bæjarfélagsins og annarra sem vilja stuðla að uppbyggingu innan Hafnarfjarðar. Með það að leiðarljósi að bæta ímynd Hafnarfjarðar og auka eftirspurn eftir hvers konar þjónustu og atvinnustarfsemi á svæðinu.
Við stöndum að fræðslu, eflum tengslanet, samstarf og kynnum aðildarfyrirtæki sem eru með starfsemi í Hafnarfirði.
Vertu partur að samfélagi fyrirtækja í Hafnarfirði og skráðu þitt fyrirtæki í MSH. -
Markaðsstofa Hafnarfjarðar vinnur að því að auka eftirspurn eftir hvers kyns vöru og þjónustu í Hafnarfirði með það að leiðarljósi að auka viðskipti innan bæjarins.
Hafnarfjarðarkortið, sem er ný og spennandi lausn fyrir íbúa og fyrirtæki í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarkortið er gjafa- og inneignarkort sem hægt er að nota í fjölmörgum verslunum, þjónustufyrirtækjum, kaffihúsum og veitingastöðum víðs vegar um bæinn. Með Hafnarfjarðarkortinu styður þú við fyrirtækin í heimabænum og hjálpar til við að efla verslun og þjónustu í Hafnarfirði um leið og þú gleður þann sem þér þykir vænt um. www.hafnarfjardarkortid.is
-
Í Hafnarfirði starfa hundruði fyrirtækja. Með því að kynna ólíka starfsemi í Hafnarfirði má bæta ásýnd bæjarins og kynna áhugaverða og eftirsótta vöru og þjónustu í bænum.
-
Við stöndum fyrir fræðslu og fróðleik sem aðildarfyrirtæki geta sótt sér að kostnaðarlausu og höfum við nú byrjað að bjóða upp á fræðslu í streymi til að mæta ólíkum þörfum fyrirtækja, ráðstefnur þar sem kafað er dýpra í ákveðinn málefni ásamt því að bjóða upp á léttari viðburði þar sem félagsmönnum býðst að efla tengsl og hafa gaman.
-
Við viljum vera hreyfiafl fyrir hafnfirsk fyrirtæki, búa til sterkt samfélag fyrirtækja í Hafnarfirði og standa þannig saman, miðla þekkingu & reynslu og styrkja tengsl og samstarf við bæjaryfirvöld.
-
Markaðsstofan stendur fyrir öflugri dagskrá með fjölbreyttum viðburðum á hverju misseri sem styðja við markmið stofunnar.
Hamingjuskál
& fyrirtækjaheimsókn
hjá Feel IcelandFimtudaginn 24. september
Feel Iceland, Strandgata 29 kl.18:00 - 19:30
Í tilefni af hamingjudögum í Hafnarfirði býður Markaðsstofan í samstarfi við Feel Iceland í hamingjuskál og fyrirtækjaheimsókn. Við ætlum að hittast og skála fyrir haustinu og fræðast um þetta öfluga og spennandi fyrirtæki.
Feel Iceland er stofnað af konum fyrir konur. Fyrsta vara þeirra kom á markað árið 2014 þegar kollagen var lítið þekkt en í dag er Feel Iceland kollagenið það mest notaða á Norðurlöndunum.
Frá árinu 2013 hefur fyrirtækið nýtt yfir 3.000 tonn af fiskroði sem áður var fargað til að búa til hágæða fæðubótaefni og drykki. Feel Iceland kollagenið er framleitt úr íslensku fiskroði í hátækni framleiðslu.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Næstu viðburðir
-
Næstu viðburðir -
Fimmtudaginn 24. september
Strandgata 29
kl.18:00 - 19:30
Hamingjuskál hjá
Feel Iceland
Í tilefni af hamingjudögum í Hafnarfirði býður Markaðsstofan í samstarfi við Feel Iceland í hamingjuskál og fyrirtækjaheimsókn. Við ætlum að hittast og skála fyrir haustinu og fræðast um þetta öfluga og spennandi fyrirtæki.
Undirbúnings- & upplýsingafundur
Hafnarfjörður breytist í sannkallaðan jólabæ í aðdraganda jóla sem laðar að sér fjölda gesta. Hafnarfjarðarbær hefur umsjón með Jólaþorpinu og efnir því Markaðsstofan til fundar með bænum og Sunnu Magnúsdóttur, verkefnastjóra jólaþorpsins.
Jólabærinn Hafnarfjörður
Föstudaginn 18. september
Bókasafn Hafnarfjarðar
kl. 09:00 - 10:30
Við viljum vekja athygli a hamingjudögum í Hafnarfirði í september og hvetja fyrirtæki í Hafnarfirði til að setja hamingjuna a dagskrá en það hefur verið marg sannað að það borgi sig fyrir árangur fyrirtækja, framlegðni starfsmanna og skili sér í minni starfsmannaveltu.
September
Hamingjudagar í Hafnarfirði
Fréttir & tilkynningar
Hafnarfjarðarkortið
Eitt kort, fjölmargir möguleikar
Markaðsstofa Hafnarfjarðar vinnur að því að búa til sterkt samfélag fyrirtækja í Hafnarfirði og auka eftirspurn eftir hvers kyns vöru og þjónustu í Hafnarfirði með það að leiðarljósi að auka viðskipti innan bæjarins.
Hafnarfjarðarkortið er ný og spennandi lausn fyrir íbúa og fyrirtæki í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarkortið er gjafa- og inneignarkort sem hægt er að nota í fjölmörgum verslunum, þjónustufyrirtækjum, kaffihúsum og veitingastöðum víðs vegar um bæinn.
Aðildarfyrirtæki
í Markaðsstofu Hafnarfjarðar
Í Hafnarfirði starfa hundruðir fyrirtækja. Markmið markaðsstofunnar er að sýna kraftinn, sköpunina og fjölbreytnina í atvinnulífi bæjarins og vekja athygli á fjölbreyttri og spennandi starfsemi fyrirtækja í Hafnarfirði og skapa samfélag fyrirtækja í Hafnarfirði. Með það að leiðarljósi að bæta ímynd Hafnarfjarðar og auka eftirspurn eftir hvers konar þjónustu og atvinnustarfsemi á svæðinu.
Stofuspjallið
Nýtt hlaðvarp Markaðsstofunnar
Stofuspjallið er nýtt og spennandi hlaðvarp á vegum Markaðsstofu Hafnarfjarðar sem gefur einstaka innsýn í fólkið sem stendur á bakvið fyrirtækin í Hafnarfirði. Við heyrum heillandi sögur, kynnumst hugmyndafræði og metnaði eigenda og skoðum spennandi starfsemi fyrirtækjanna. Vertu með og uppgötvaðu kraftinn og sköpunargleðina sem gerir Hafnarfjörð sérstakan.
Þið finnið stofuspjallið hér og á Spotify.