
MSH FRÉTTIR
Bæjarbíó Hafnarfjarðar valið Fyrirtæki ársins 2025
Á hátíðlegri athöfn í Hafnarborg í gærkvöldi, miðvikudaginn 26. mars, var Bæjarbíó Hafnarfjarðar útnefnt Fyrirtæki ársins 2025 í Hafnarfirði. Viðburðurinn, sem haldinn er árlega af Markaðsstofu Hafnarfjarðar, vakti mikla athygli og var salurinn þéttsetinn af gestum sem samankomnir voru til að heiðra framúrskarandi fyrirtæki í bænum.
Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, afhenti Páli Eyjólfssyni og Pétri Ó Stephensen eigendum Bæjarbíó verðlaunin og flutti um leið þakkarorð til fyrirtækisins fyrir þeirra framlag til samfélagsins.
„Bæjarbíó er einstök menningarperla í hjarta Hafnarfjarðar. Það hefur gegnt lykilhlutverki í að efla menningarlíf bæjarins með fjölbreyttri dagskrá sem höfðar bæði til heimamanna og gesta. Með tónleikum, leiksýningum auk þess að spila lykilhlutverk í Jólaþorpi Hafnarfjarðar og Hjarta Hafnarfjarðra hefur Bæjarbíó lagt sitt af mörkum til að gera Hafnarfjörð að líflegum og skapandi bæ. Við erum einstaklega stolt af því að heiðra Bæjarbíó með þessari viðurkenningu,“
Bæjarbíó, sem var stofnað árið 1945, er elsta starfandi kvikmyndahús landsins og hefur í gegnum árin þróast í að verða alhliða menningarhús. Með fjölbreyttri dagskrá hefur það skapað ómetanlegt framlag til menningar og samfélags í Hafnarfirði. Það hefur verið vettvangur fyrir listamenn á öllum sviðum, og glætt miðbæinn lífi með viðburðum sem höfða til allra aldurshópa.
Auk Bæjarbíós voru tilnefnd til verðlaunanna fjögur önnur fyrirtæki:
Nándin, plastlaus matvöruverslun í Hafnarfirði, hefur skapað sér sess með umhverfisvænni og sjálfbærri nálgun á verslun. Nándin hefur verið brautryðjandi í plastlausum lausnum og stuðlað að aukinni vitund um umhverfisvernd í bænum.
Fjörukráin, veitingastaður með víkingaþema, hefur verið aðdráttarafl bæði fyrir íbúa og ferðamenn með einstakri upplifun og lifandi stemningu. Fjörukráin hefur glætt miðbæinn lífi og styrkt ferðaþjónustu í Hafnarfirði.
Ísfell, rótgróið fyrirtæki í Hafnarfirði, framleiðir veiðarfæri fyrir íslenskan sjávarútveg og hefur með nýsköpun og gæðum eflt bæði atvinnulíf og samkeppnishæfni íslenskra útgerða á alþjóðamarkaði.
Gulli Arnar Bakarí, handverksbakarí með áherslu á hágæða brauð og bakkelsi, hefur með ástríðu sinni fyrir bakstri auðgað matarmenningu Hafnarfjarðar og skapað mikilvægan samkomustað fyrir bæjarbúa.
Einnig var Dalakofanum og Súfustanum veitt heiðurs- og þakkarverðlaun Markaðsstofunnar fyrir áratuga starf í Hafnarfirði.
Markaðsstofa Hafnarfjarðar stendur árlega fyrir vali á Fyrirtæki ársins til að heiðra fyrirtæki sem hafa skarað fram úr í að efla atvinnulíf og bæjarbrag í Hafnarfirði. Markmiðið er að vekja athygli á því frábæra starfi sem unnið er innan bæjarins og hvetja til áframhaldandi þróunar og nýsköpunar í atvinnulífi bæjarins.
Markaðsstofa Hafnarfjarðar óskar Bæjarbíó innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu og þakkar öllum tilnefndum fyrirtækjum fyrir þeirra ómetanlega framlag til samfélagsins. Ásamt því viljum við þakka dómnefnd fyrir sín störf. Í dómnefnd sátu:
Jóhannes Egilsson - Formaður stjórnar MSH og eigandi Von Harðfiskverkun
Bjarni Lúðvíksson - Stjórnarmaður MSH og eigandi Reykjavik Asian
Geirþrúður Guttormsdóttir - Eigandi og framkvæmdastjóri Betri stofunnar
Ingvi Einar Ingvason - Eigandi Mars media
Guðrún María Guðmundsdóttir - Markaðsstjóri Fjarðar
Nánari upplýsingar veitir:
Þóra Hrund Guðbrandsdóttir
thorahrund@msh.is
Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði - Tilnefningar
Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði verður valið með pompi og prakt miðvikudaginn 26. mars næstkomandi í Hafnarborg.
Hvatningarverðlaun markaðsstofunnar voru fyrst afhent árið 2017 en þau verðlaun eru núna nefnd Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði. Verðlaun og viðurkenningar eru veittar fyrirtækjum sem hafa vakið eftirtekt, lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning og þakklætisvottur fyrir óeigingjarnt og frábært starf við að gera Hafnarfjörð að betra samfélagi.
Dómnefnd fyrir val á fyrirtæki ársins samanstendur af þremur einstaklingum úr stjórn Markaðsstofunnar ásamt fjórum ótengdum aðilum sem koma saman og og velja úr tilnefndum fyrirtækjum, svo þín tilnefning skiptir máli.
Skemmtileg og lífleg fræðsla um gervigreind
Mikil ánægja með námskeiðið okkar Gervigreind á hraðferð sem við héldum fyrir starfsfólk aðildarfyrirtækja markaðsstofunnar.
Í gær héldum við námskeiðið Gervigreind á hraðferð fyrir starfsfólk aðildarfyrirtækja markaðsstofunnar.
Fyrirlesarinn var Steinn Örvar Bjarnason, tölvunarfræðingur sem fór yfir það hvað gervigreind er í raun og veru og á hvaða hraðferð hún er núna í upphafi árs 2024. Hann sýndi hvernig hægt er að nýta hana við að búa til texta, myndir og hljóð og hvernig hún geti auðveldað okkur ýmislegt í starfi ásamt því að geta kennt okkur fjölmargt. Þá talaði Steinn um að þróunin væri mjög hröð og mikilvægt sé að vera gagnrýnin þar sem gervigreindin getur líka byrjað að bulla. Hún sé nefnilega sniðug á sumum sviðum en jafnframt hættuleg á öðrum.
Skemmtilegt og líflegt
Það var mikil ánægja með námskeiðið og þá sérstaklega með Stein sem fyrirlesara en í námsmati sem við gerðum í lokin sögðust 95% þátttakenda vera ánægð með hann og þar af 85% mjög ánægð. Þá voru nokkrir sem komu ánægju sinni með námskeiðið á framfæri með eftirfarandi orðum:
Skemmtileg og lífleg fræðsla um mikilvægt málefni sem mun nýtast vel í starfi í framtíðinni
Virkilega áhugavert og sett fram á skemmtilegan hátt
Sérstaklega góður kennari
Frábært námskeið
Mjög flott og áhugavert námskeið
Ímyndunaraflið mikilvægt
Við þökkum þeim sem mættu fyrir komuna og vonum að allir verði duglegir að nýta sér gervigreindina í framtíðinni og muni að nýta sér ímyndunaraflið. Það var annars greinilega einhver strax farin að nýta sér gervigreindina við gerð námsmatsins og kom með fullt af flottum hugmyndum að framtíðar námskeiðum markaðsstofunnar okkur til mikillar ánægju. Að lokum þökkum við Steini fyrir frábæra fræðslu og komuna í Hafnarfjörðinn.
Níu ný fyrirtæki
Starf markaðsstofunnar hefur dafnað gríðarlega vel að undanförnu og hópurinn okkar stækkað og eflst. Frá því í byrjun desember hafa níu ný fyrirtæki bæst í okkar öfluga hóp.
Starf markaðsstofunnar hefur dafnað gríðarlega vel að undanförnu og hópurinn okkar stækkað og eflst. Frá því í byrjun desember hafa níu ný fyrirtæki bæst í okkar öfluga hóp. Við bjóðum þau velkomin og hlökkum til að kynnast þeim.
Nýju fyrirtækin eru:
· A Hansen
· Kaki
· KFC
· Studio F
· Ægir 220
· 3xT
Með aðild gefst fyrirtækjunum tækifæri til að styrkja sitt tengslanet innan bæjarins og í sameiningu eflum við og styrkjum hafnfirskt atvinnulíf.
Starfsfólk þessara fyrirtækja fær nú aðgang að fræðslu og fyrirtækjaheimsóknum markaðsstofunnar. Nafn þessar fyrirtækja eru jafnframt komin í pottinn góða þar sem fyrirtæki vikunnar er dregið út.
Vertu með
Við hvetjum rekstraraðila í Hafnarfirði sem ekki eru skráðir í markaðsstofuna að slást í hópinn.
Skráning í Markaðsstofu Hafnarfjarðar
Ljósmynd efst: Olga Björt
Fyrirtæki ársins - tilnefningar óskast
Hvaða hafnfirska fyrirtæki hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum og ætti að vera útnefnt Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði?
18. janúar 2024
Hvaða hafnfirska fyrirtæki hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum og ætti að vera útnefnt Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði?
Áttunda árið í röð höldum við hvatningarverðlaunahátíð þar sem við veitum verðlaun og viðurkenningar til hafnfirska fyrirtækja. Nú hefur verið ákveðið að útnefna Fyrirtæki ársins ásamt því að veita viðurkenningar til fyrirtækja, nýliða eða frumkvöðuls sem hafa með starfsemi sinni eflt atvinnulíf og bæjaranda í Hafnarfirði.
Tilnefningar
Allir geta tilnefnt en nauðsynlegt er að láta röksemdarfærslu fylgja með. Stjórn markaðsstofunnar fer í kjölfarið yfir tilnefningarnar og velur verðlaunahafa úr þeim hópi.
Hægt er að senda inn tilnefningu til 17. mars næstkomandi með því að smella HÉR
Listi yfir aðildarfyrirtæki markaðsstofunnar gæti komið sér vel til að fá hugmyndir.
Verðlaun- og verðlaunaafhending
Þessi verðlaun eru þakklætisvottur markaðsstofunnar fyrir óeigingjarnt starf við að gera Hafnarfjörð að betra samfélagi. Tilkynnt verður um verðlaunahafa við hátíðlega athöfn þann 15. febrúar næstkomandi. Þar verður jafnframt veglegt myndband um fyrirtæki ársins frumsýnt.
Fyrrum verðlaunahafar
Á síðasta ári var það Fjarðarkaup sem fékk hvatningarverðlaunin en Jólaþorpið, Ísfell, Litla Hönnunar Búðin og Guðmundur Fylkisson fengu einnig viðurkenningu. Hægt er að skoða verðlaunahafa undanfarinna ára hér
Nokkrar myndir frá verðlaunahátíðinni í fyrra.
Fyrsta fyrirtækjakaffi ársins
Fyrsta fyrirtækjakaffi ársins verður haldið fimmtudaginn 18. janúar kl. 9:00 á Betri Stofunni.
15. janúar 2024
Fyrsta fyrirtækjakaffi ársins verður haldið fimmtudaginn 18. janúar kl. 9:00 á Betri Stofunni.
Frábær vettvangur fyrir fólk í atvinnulífinu í Hafnarfirði til að koma saman, styrkja tengslanetið og ræða mál líðandi stundar. Notaleg og óformleg stemmning en umræðuefnið ræðst af því hverjir mæta og brydda upp á efni.
Fyrirtækjaeigendur og lykilstarfsmenn fyrirtækja í Hafnarfirði velkomnir. Framkvæmdastjóri markaðsstofunnar sem og hluti stjórnar verða á staðnum. Við hlökkum til að sjá sem flesta.
Gervigreind á hraðferð
Námskeið þar sem farið verður yfir hvað gervigreind er í raun og veru og hvernig við getum nýtt hana.
Námskeið þar sem farið verður yfir hvað gervigreind er í raun og veru og á hvaða hraðferð hún er núna í upphafi árs 2024. Hvernig við getum nýtt hana sem tæki til að gera starf okkar markvissara og ná árangri. Þá verður einnig farið inn á hvað beri helst að varast. Gervigreindin er nefnilega sniðug á sumum sviðum en hættuleg á öðrum og því er betra að kynna sér þessa nýjung mjög vel.
Á námskeiðinu verður einnig fjallað um hvernig best sé að byrja að nota gervigreindarþjónustur líkt og ChatGPT og MScopilot.
Hver
Steinn Örvar Bjarnason, tölvunarfræðingur er Lead product development engineer hjá Advania og sér þar um innleiðingu og þróun á nýjum vörum en einnig innleiðingu nýrrar tækni, þar á meðal gervigreind. Hann lauk nýlega krefjandi námi hjá Cisco og hlaut æðstu gráðu sem hægt er að fá þaðan.
Sérþekking Steins Örvars nýtist vel í netdeild Advania sem rekur og hýsir netkerfi fjölmargra fyrirtækja og stofnanna. Steinn hefur haldið fjölmarga fyrirlestra um gervigreind bæði hér heima og erlendis.
Hvenær og hvar
Miðvikudaginn 24. janúar kl. 9:00 – 11:00 á Kænunni
Skráning
Skráningarfrestur til 22. janúar.
Mynd efst Growtika on Unsplash
15. janúar 2024
Fyrirtækjakaffi með kaffigestum - Guðbjörg Oddný og Sunna
Fyrirtækjakaffi með kaffigestunum Guðbjörg Oddný, formanni menningar- og ferðamálanefndar sem og umhverfis- og framkvæmdaráðs. Með henni verður Sunna Magnúsdóttir verkefnastjóri menningar og ferðamála hjá Hafnarfjarðarbæ.
Síðastliðið haust byrjuðum við á að fá til okkar kaffigest í Fyrirtækjakaffið og vakti það mikla lukku. Eftir góða heimsókn frá Rósu bæjarstjóra í september kom upp ósk að fá fleiri aðila frá Hafnarfjarðarbæ til að koma á framfæri hvað liggi hafnfirskum fyrirtækjaeigendum á hjarta.
Að þessu sinni kemur til okkar Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, formaður menningar- og ferðamálanefndar sem og umhverfis- og framkvæmdaráðs. Með henni verður Sunna Magnúsdóttir verkefnastjóri menningar og ferðamála hjá Hafnarfjarðarbæ. Þær tvær hafa meðal annars yfirumsjón með jólaþorpinu og úthlutun á styrkjum til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í Hafnarfirði.
Fyrirtækjakaffið verður haldið þriðjudaginn 6. febrúar kl. 9:00 í Betri stofunni og hvetjum við sem flesta til að mæta.
Styrkja tengslanetið
Fyrirtækjakaffi er annars frábær vettvangur fyrir fólk í atvinnulífinu í Hafnarfirði til að koma saman, styrkja tengslanetið og ræða mál líðandi stundar. Fyrirtækjaeigendur og lykilstarfsmenn fyrirtækja í Hafnarfirði velkomnir. Framkvæmdastjóri markaðsstofunnar sem og hluti stjórnar verða á staðnum.
Guðbjörg Oddný og Sunna
Fyrirtæki ársins valið
Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði verður útnefnt á Hvatningarverðlaunahátíð markaðsstofunnar fimmtudaginn 15. febrúar kl. 17:30 í Apótekinu í Hafnarborg.
FYRIRTÆKI ÁRSINS VALIÐ 9. APRÍL
Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði verður útnefnt á Hvatningarverðlaunahátíð markaðsstofunnar þriðjudaginn 9. apríl næstkomandi.
Áttunda árið í röð veitum við hvatningarverðlaun til fyrirtækis sem hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum. Jafnframt veittum við viðurkenningar til fyrirtækja sem hafa með starfsemi sinni eflt atvinnulíf og bæjaranda í bænum okkar.
Verðlaunin og viðurkenningarnar eru þakklætisvottur markaðsstofunnar fyrir óeigingjarnt starf við að gera Hafnarfjörð að betra samfélagi.
Nánari dagskrá verður tilkynnt síðar. Viðburðurinn er öllum opinn og vonumst við til að sjá sem flesta.
Heimsókn í flugherma Icelandair
Heimsækjum CAE Icelandair Flight Training ehf., dótturfyrirtæki Icelandair sem rekur flughermana á Flugvöllum 1 í Hafnarfirði.
CAE Icelandair Flight Training ehf. er dótturfyrirtæki Icelandair og sér um eignarhald og rekstur á flughermunum að Flugvöllum 1 í Hafnarfirði.
Félagið rekur þrjá flugherma sem eru af Boeing gerðunum 737 MAX, 767-300 og 757-200 , vélar sem eru í rekstri hjá Icelandair í dag. Þá rekur félagið einnig eldhermi og sér um viðhald og umsjón á öðrum þjálfunarbúnaði Icelandair eins og flugvélaskrokkum og hurðaþjálfum.
Icelandair er stærsti viðskiptavinur fyrirtækisins og var með rúmlega 60% allra selda tíma í flughermana en aðrir tímar eru seldir til aðila víðsvegar um heiminn. Fjöldi seldra tíma árið 2023 var yfir 15.000 sem var stærsta ár félagsins hingað til.
Við fáum að koma til þeirra í heimsókn á Flugvelli til að kynnast starfseminni og heyra hverjar þeirra helstu áskoranirnar eru um þessar mundir.
Hvenær: Föstudaginn 23. febrúar kl. 9:00
Fyrir hverja: Starfsfólk aðildarfyrirtækja markaðsstofunnar
Skráning: Skráningarfrestur til og með 20. febrúar.
Það eru einungis 20 pláss laus í þessa heimsókn og við hvetjum áhugasama því til að skrá sig sem fyrst.
15. janúar 2024